Búinn að gefast upp á þessu rusli, fluttur á http://www.hrobjartur.blogdrive.com, change your links please!!!!!!!!!!!!!!!1
nashyrningur
föstudagur, október 08, 2004
laugardagur, október 02, 2004
Í næstu viku eignast ég leynivin, þá er nebbla leynivinavika í skólanum. How cool is that...Núna er ég í afslöppun á Hagamelnum að horfa á Friends í þynnkunni, októberfest í gær sem endaði í fámennu singstar partý og Tekken 4. Bíó í kvöld og svo er kvöldið opið, hugmyndir vel þegnar. Er að spá í að skella mér í sund ásamt Hafþóri, annars er lítið að frétta.
Drasl
þriðjudagur, september 28, 2004
Skellti inn nokkrum myndum frá Reading, sem voru teknar áður en að myndavélin mín bilaði. Smellið á myndir neðst í linkunum
Enjoy
laugardagur, september 25, 2004
Ég er enn smá fjólublár á vinstri rasskinn eftir þriðjudagskvöldið en ég og Valli áttum að fá special treatment fyrir að vera einu mennirnir sem hafa reykt inní húsnæði íþróttakennaraskólans, sem var óvart. Byrjuðum að drekka kl 4 í rútunni, fórum í bæinn í sundhöll reykjavíkur þar sem við vorum flengdir. Fórum svo á Tapasbarinn að borða og drekka meira og svo á Nelly´s að drekka meira. Rútuferðin til baka er það síðasta sem ég man...Vaknaði daginn eftir heima í buxunum. Fór fram, fann ekki bolinn sem ég var í, jakkann minn með síma og öðru, bakpokinn var týndur og bjórinn sem ég átti var ekki til staðar. Þegar ég ætlaði út var bara annar skórinn í forstofunni. Rölti með Soffíu niðrá vist og fann bakpokann minn í setustofunni. Soffía sagði mér að ég hefði týnt bolnum mínum og ég hefði því verið ber að ofan allt kvöldið. Great! Fórum svo inná gang og ég sagði Soffíu að hringja í símann minn og við heyrðum hann hringja inní einhverju herbergi og þar lá jakkinn minn á gólfinu. Hittum Stebba og hann sagði "hey varst það ekki þú sem fórst inní eitthvað hús í nótt?" Ekki kannaðist ég við þa', en þá rifjaðist eitthvað upp fyrir Soffíu. Þá endaði ég semsagt inní stofu hjá konu sem kennir í ML af því ég vissi ekkert hvar ég átti heima og var sóttur þangað og fylgt heim. Bjórinn minn fann ég svo inní matsal og skórinn minn var fyrir utan eldúsgluggann heima, þar sem ég hafði greinilega reynt að troða mér inn því ég var lyklalaus þegar ég fór heim. Þá var mér semsagt svo kalt, þar sem ég var ber að ofan að ég fór bara inní næsta opna hús. Á miðvikudagskvöldið var svo fundur í skólanum útaf slæmri umgengni á vistinni og af því "einhver" fór inní ókunnugt hús og var heppinn að vera ekki kærður fyrir innbrot.
Niðurstöður: Ég er hættur að drekka á þriðjudögum!
mánudagur, september 20, 2004
buffalóbuffalóbuffaló
Á morgun verð ég settur í sturtu og flengdur 5 sinnum af annars og þriðjaársnemum á Laugarvatni. Djöfull hlakka ég til. Á morgun er semsagt kallakvöld hér, sem er eitt af aðalfylleríum annarinnar, maður verður orðinn alki eftir þetta blessaða nám! Djammið er líka alltaf á virkum dögum, hreinasta snilld. Í síðustu viku var konukvöldið, stelpurnar á 1.ári voru látnar fara í sundbolina öfuga yfir fötin og fóru í hlaupa í skarðið á umferðareyju á Selfossi, allar blindfullar. Svo komu þær aftur um kvöldið á vistina þar sem við herramennirnir biðum eftir þeim með blóm, áfengi og nudd. Eins gott að þær verði góðar við okkur á morgun.
Helgin síðasta var annars góð, Gaukurinn á laugardagskvöldið, þar var fullt af valinkunnum austfirðingum og ég skemmti mér bara konunglega. Fór með Valla, Erlu, Soffíu og Júlíu, en þeim fannst ekkert gaman, hefðu bara átt að lúffa sig meira, stemning í því:)
Annars hvet ég alla til að koma í heimsókn á Laugarvatn svo að ég og Soffía getum hætt að búa hjá Valla og Erlu, örugglega komin með ógeð á okkur.
http://www.denverpost.com/Stories/0,1413,36~90~2407551,00.html
Annars var ég að sjá þessa frétt, ekki amalegt ef kaaallinn er með kommbakk!
Until next, auf wiedersehen
föstudagur, september 03, 2004
Síðasta vika hefur mjög viðburðarík. Ég og Gústi fórum á Reading á finntudaginn og hittum svo Óla og Önnu á föstudaginn. Við tjölduðum á góðum stað dáldið frá tónleikasvæðinu svo að við þyrftum ekki að sofa á kafi í drullu. Keyptum stóla sem voru fyrir utan tjaldið, snilldarkaup sem stuðluðu reyndar að því að við nenntum aldrei að standa upp til að fara á neina tónleika heldur sátum bara blindfullir fyrir utan tjaldið allan tímann:0 Á föstudaginn sáum við Hundred Reasons sem eru bestir og svo sáum við Offspring, sem ég man eiginlega ekkert eftir. Man samt að Óli pissaði í bjórdós. Á laugardaginn sáum við svo Dillinger Escape Plan, Avenged Sevenfold, The White Stripes, Funeral for a Friend og eitthvað fleira drasl. Á sunnudeginum fórum við með Búnaðarbankafánann sem blakti í trénu fyrir ofan tjaldið okkar að sjá Mínus klukkan 12 á hádegi, flott ball það. Svo var það Placebo, svo fórum við í tjaldið að drekka og misstum því miður af því að sjá 50 cent grýttan af sviðinu. Fórum svo að sjá Green Day, sem voru alveg magnaðir.
Á mánudaginn vöknuðum við snemma, tókum lestir og rugl til London og ætluðum að versla eitthvað og það endaði að sjálfsögðu með því að við misstum af vélinni. Þá var bara splæst á herbergi á Radisson sas og það var góð nótt hjá okkur köllunum sem fengum loks að kúra í rúmi saman eftir helvítis tjalddýnurnar. Sjaldan hefur verið neytt eins mikis áfengis eins og í þessari ferð.
Á miðvikudaginn var svo fyrsti dagurinn á Laugarvatni... fórum í sundtímatöku, heila 100 metra, sem var það erfiðasta sem ég hef gert. Svimi og læti. Svo fórum við að gera einhverjar boltaþrautir, og loks 3000 metra hlaupið. Ég vil aldrei tala um það aftur. Var samt ekki seinastur. Í gærkvöldi var svo busun. Það var nú bara eitt allsherjar fyllerí, hlupum einhvern hring, fórum úr brókinni á leiðinni, drukkum meira og áttum svo að kynna okkur bara á brókinni upp á sviði fyrir framan allan skólann, og ég sýndi á mér rassinn. Semsagt: gott djamm.
Nú er ég í bænum að reyna að finna mér eitthvað að gera. Bæó
föstudagur, ágúst 20, 2004
Það hefur verið ákveðið að gera mig að heiðursfélaga í Félagi Íslenskra Sundlaugarvarða (F.Í.S) sökum mikillar elju og dugnaðar við vinnu. Ég hef semsagt verið að vinna stanslaust í 3 vikur, fékk þó frí til að fara á ættarmót á Flúðum þar sem ég fór í meðal annars í rútuferð til að skoða bárujárnshrúgu og tvo gamla ofna. Það var leiðinlegt. Um verslunarmannahelgina fór ég á Borgarfjörð og Neskaupstað, same shit, different people, mun skárra en bárujárnið allavega.
Síðustu helgi var lokahóf Þristar haldið og svo var ball með Skítamóral. "Þegar ég segi skíta, segið þið mórall" hefði Raekwon allavega orðað það. Það var bara gaman, en vinnan daginn eftir var leiðinleg.
Á miðvikudag liggur svo leið til Reykjavíkur og út til Reading á fimmtudag og tekur þá við 4 daga fyllerí og tónlistaráhorf/hlustun. Daginn eftir að ég kem heim eru svo sundtímatökur og 3000 m. hlaup á Laugarvatni....fucking hell
ps. það er búið að kúka þrisvar í laugina þegar ég er að vinna og einn félagi var búinn að skíta á sig í klefanum. Allir í sund!!
